Man Utd ætlar að reka Ten Hag - Hver tekur við? - Tuchel hefur áhuga á starfinu
banner
   lau 27. apríl 2024 12:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Carragher vill að Tuchel taki við af Klopp
Mynd: EPA

Jamie Carragher fyrrum varnarmaður Liverpool segir að hann vilji frekar að félagið ráði Thomas Tuchel en Arne Slot.


Liverpool er í viðræðum um að ráða Slot sem stýrir Feyenoord í Hollandi. Hann varð hollenskur meistari með liðinu á síðustu leiktíð en hefur aldrei stýrt félagi fyrir utan Hollands.

Carragher skrifaði grein í The Telegraph þar sem hann skrifaði um kosti Tuchel.

„Ég hefði hugleitt þjálfara eins og Thomas Tuchel betur, einhver sem vann Pep Guardiola í stóra prófinu, úrslitum Meistaradeildarinnar," skrifaði Carragher.

„Tuchel tók við af Klopp hjá Mainz og Dortmund og gerði vel. Þetta hefur ekki gengið upp hjá Bayern en það þarf aðeins að horfa til Carlo Ancelotti og Unai Emery til að sjá hvernig topp þjálfarar koma til baka eftir bakslög. Ég myndi frekar kjósa stjóra sem hefur sannað sig sem sigurvegari frekar en einhvern sem þarf að sanna sig."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner