Þriðja umferð Bestu deildarinnar fer af stað í kvöld með leik Stjörnunnar og Vals. Það er mjög áhugaverð umferð framundan og hér má sjá tíu umræðupunkta í kringum komandi leiki.
föstudagur 19. apríl
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
laugardagur 20. apríl
14:00 HK-FH (Kórinn)
16:15 KR-Fram (AVIS völlurinn)
sunnudagur 21. apríl
14:00 KA-Vestri (Greifavöllurinn)
17:00 ÍA-Fylkir (Akraneshöllin)
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
föstudagur 19. apríl
19:15 Stjarnan-Valur (Samsungvöllurinn)
laugardagur 20. apríl
14:00 HK-FH (Kórinn)
16:15 KR-Fram (AVIS völlurinn)
sunnudagur 21. apríl
14:00 KA-Vestri (Greifavöllurinn)
17:00 ÍA-Fylkir (Akraneshöllin)
19:15 Víkingur R.-Breiðablik (Víkingsvöllur)
Nær Emil Atlason að skora sitt fyrsta mark? - Markaskorarinn mikli gerði nýjan samning við Stjörnuna í vetur en fann sig ekki í fyrstu tveimur leikjunum. Hann hefur fengið gagnrýni og talað um að hann sé í slæmu formi.
Hvernig svara Valsmenn eftir dapra frammistöðu gegn Fylki? - Valsmenn stóðu engan veginn undir væntingum gegn Fylki og Arnar Grétarsson var gagnrýndur af nafna sínum Arnari Sveini Geirssyni. Valsmenn ætla sér Íslandsmeistaratitilinn en þá er ekki í boði að misstíga sig of mikið.
Hvernig kemur HK til baka eftir skellinn? - HK tapaði 0-4 gegn ÍA í Kórnum, heimavellinum sem á að vera þeirra vígi. Þeir mæta aftur í Kórinn og leika gegn FH á morgun.
Miðjan gerir AVIS völlinn að sínum heimavelli - Stuðningsmenn KR hafa verið bestu stuðningsmennirnir í upphafi móts. KR leikur sinn fyrsta heimaleik á velli Þróttar þar sem grasið á Meistaravöllum er ekki klárt í slaginn.
Rúnar Kristinsson mætir KR - KR-ingar ákváðu í fyrra að leiðir félagsins og Rúnars myndu skilja. Rúnar mætir KR á morgun en því miður ekki í Frostaskjólinu sem hefði verið enn skemmtilegri sögulína.
Eykst pressan fyrir norðan? - KA leikur sinn þriðja heimaleik en uppskeran hingað til hefur verið rýr. Nú koma nýliðar Vestra í heimsókn og ekki annað í stöðunni fyrir KA en að taka öll stigin.
Kemst Vestri á blað? - Byrjunin hefur verið erfið hjá nýliðunum sem hafa tapað fyrstu tveimur leikjum sínum og ekki enn náð að skora. Liðið var bitlaust og veitti Breiðabliki enga samkeppni í síðustu umferð.
Heldur Viktor áfram að skora? - Viktor skoraði þrennu gegn HK og leikur aftur undir þaki um helgina, leikur ÍA og Fylkis var færður inn í Akraneshöllina.
Verður ekki örugglega hiti í Fossvoginum? - Það má búast við því að allt verði á suðupunkti á sunnudag þegar Víkingur og Breiðablik eigast við. Þó Óskar Hrafn sé horfinn á braut þá er engin ást milli þessara liða og líklegt að mikið muni mæða á dómara leiksins. Bæði lið eru með fullt hús en eitthvað þarf undan að láta.
Athugasemdir