Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 26. mars 2024 21:05
Brynjar Ingi Erluson
Úkraína jafnar - Tsygankov með mark í anda Robben
Icelandair
Viktor Tsygankov í baráttunni við Gumma Tóta
Viktor Tsygankov í baráttunni við Gumma Tóta
Mynd: Mummi Lú
Úkraína var að jafna metin gegn Íslandi í úrslitaleik EM-umspilsins í Wroclaw í Póllandi og er staðan nú 1-1.

Lestu um leikinn: Úkraína 2 -  1 Ísland

Viktor Tsygankov, leikmaður Girona, skoraði markið á 54. mínútu leiksins.

Vængmaðurinn fékk boltann frá Georgiy Sudakov, fékk að keyra upp við vítateigslínuna áður en hann skaut boltanum í vinstra hornið, sem minnti svolítið á Arjen Robben, sem skoraði oft og mörgum sinnum úr slíku færi.

Úkraínumenn eru að þrýsta vel á vörn á íslenska liðsins en hálftími er eftir af leiknum.




Athugasemdir
banner
banner