David Moyes gerir tvær breytinar á liði sínu sem steinlá gegn Crystal Palace 5-2 í síðustu umferð.
Jarrod Bowen kemur inn í liðið eftir að hafa misst af síðasta leik vegna bakmeiðsla. Hann kemur inn fyrir James Ward-Prowse. Þá er Alphonse Areola mættur aftur í markið fyrir Lukasz Fabianski.
Jurgen Klopp gerir fimm breytingar á sínu liði sem tapaði í grannslagnum gegn Everton í vikunni.
Mohamed Salah fær sér sæti á bekknum og Cody Gakpo kemur aftur inn í liðið en han var fjarverandi gegn Everton þar sem hann var að eignast barn. Ibrahima Konate, Dominik Soboszlai, Curtis Jones og Darwin Nunez setjast allir á bekkinn.
Harvey Elliott, Ryan Gravenberch, Wataru Endo og Jarrell Qunasah koma inn í þeirra stað.
West Ham: Areola, Coufal, Zouma, Ogbonna, Emerson, Soucek, Alvarez, Kudus, Paqueta, Bowen, Antonio
Liverpool: Alisson, Alexander-Arnold, Van Dijk, Quansah, Robertson, MacAllister, Gravenberch, Endo, Elliott, Gakpo, Diaz