Landsliðsmaðurinn Arnór Sigurðsson hefur líklega spilað sinn síðasta leik á þessu tímabili en það er Hjörvar Hafliðason sem greinir frá þessu á X í dag.
Arnór meiddist eftir háskalega tæklingu Roy Revivo í 4-1 sigri Íslands á Ísrael í undanúrslitum EM-umspilsins fyrir helgi.
Revivo fékk að líta rauða spjaldið en Arnór neyddist til að fara af velli vegna meiðsla sinna.
Hjörvar segir á X að Arnór verði frá næstu átta vikur og missi því af restinni af tímabilinu með Blackburn Rovers.
Slæmar fréttir fyrir Arnór og Blackburn, sem er í harðri baráttu í neðri hluta ensku B-deildarinnar.
Vængmaðurinn verður búinn að ná sér fyrir Evrópumótið sem fer fram í Þýskalandi í sumar. Ísland þarf að vinna Úkraínu á morgun til að tryggja farseðilinn þangað.
Vondar fréttir úr enska boltanum. Arnór Sig er úr leik á þessari leiktíð(8 vikur) fyrir @Rovers
— Hjörvar Hafliðason (@hjorvarhaflida) March 25, 2024
Þessi tækling var auðvitað eins og hver önnur árás. Ömurlegt fyrir Arnór, landsliðið og Blackburn.
Verður klár á EM ef þetta tekst á morgun. pic.twitter.com/1JXSuqYMfK
Athugasemdir