Sergiy Rebrov, þjálfari úkraínska landsliðsins, gerir þrjár breytingar á liði sínu fyrir leikinn gegn Íslandi frá undanúrslitaleiknum gegn Bosníu á fimmtudag.
Úkraína og Ísland spila í Póllandi í kvöld um sæti á EM í sumar. Leikurinn hefst klukkan 19:45.
Úkraína og Ísland spila í Póllandi í kvöld um sæti á EM í sumar. Leikurinn hefst klukkan 19:45.
Lestu um leikinn: Úkraína 2 - 1 Ísland
Oleksandr Zinchenko, fyrirliði Úkraínu og leikmaður Arsenal, tekur sér sæti á bekknum. Það gera einnig Artem Dovbyk framherji Girona og Oleksandr Zubkov sem spilar með Shakhtar Donetsk.
Inn í liðið koma þeir Ruslan Malinovskiy, Roman Yaremchuk sem var hetja Úkraínu á fimmtudag, og Viktor Tsygankov.
Athugasemdir