Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 28. mars 2024 16:33
Brynjar Ingi Erluson
FH semur við Örnu Eiríks til þriggja ára (Staðfest) - Vigdís framlengir
Arna Eiríksdóttir kemur til FH frá Val
Arna Eiríksdóttir kemur til FH frá Val
Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Vigdís Edda skrifaði undir eins árs framlengingu
Vigdís Edda skrifaði undir eins árs framlengingu
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
FH hefur gengið frá þriggja ára samningi við Örnu Eiríksdóttur en hún kemur til félagsins frá Val. Þetta kemur fram í tilkynningu frá FH í dag.

Arna, sem er fædd árið 2002, er uppalin hjá Val og Víkingi, en hún eyddi síðustu leiktíð á láni hjá FH.

Hún leikur stöðu miðvarðar og gerði afar vel með FH-liðinu en hún er nú alfarið komin yfir í FH og er samningur hennar til næstu þriggja ára.

Arna á 2 A-landsleiki að baki, þann fyrri gegn Eistlandi árið 2022 og síðan í 1-0 sigrinum á Austurríki á síðasta ári.

Vigdís framlengir út tímabilið

Vigdís Edda Friðriksdóttir hefur þá framlengt samning sinn við fimleikafélagið út tímabilið.

Hún er fædd árið 1999 og uppalin á Sauðárkróki en hún á leiki með Tindastól, Breiðablik og Þór/KA.

Vigdís er að fara inn í þriðja tímabilið með FH.

FH hafnaði í 6. sæti Bestu deildarinnar á síðasta tímabili með 29 stig.


Athugasemdir
banner