Endrick, verðandi leikmaður Real Madrid, hefur verið sjóðandi heitur að undanförnu en hann fullkomnaði frábæra viku í nótt þegar hann tryggði Palmeiras sæti í úrslitum Paulista bikarsins.
Hann skoraði eina mark leiksins í sigri á Novorizontino í undanúrslitum en liðið mætir Santos í úrslitum.
Endrick, sem er aðeins 17 ára gamall, var í landsliðshópi Brasilíu í nýliðnu landsliðsverkefni þar sem hann skoraði sigurmarkið gegn Englandi og skoraði einnig í 3-3 jafntefli gegn Spáni.
Hann hefur unnið brasilísku deildina tvisvar og Paulista bikarinn einu sinni en félög í Sao Paulo ríki berjast um bikarinn.
Hann mun ganga til liðs við Real Madrid í júlí þegar hann mun ná 18 ára aldri.
Endrick can't stop scoringpic.twitter.com/1aSudt1xbv
— Vertigo_Warrior (@VertigoWarrior) March 29, 2024
Athugasemdir