Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   fös 29. mars 2024 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Spánn um helgina - Hart barist á öllum vígstöðum
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: EPA
Cádiz og Granada eigast við í eina leik kvöldsins í efstu deild spænska boltans sem fer aftur af stað eftir landsleikjahlé.

Á morgun mætir Sevilla til leiks á útivelli gegn Getafe áður en Valencia fær Mallorca í heimsókn og Barcelona tekur að lokum á móti Las Palmas.

Börsungar eru átta stigum á eftir toppliði Real Madrid þegar níu umferðir eru eftir af tímabilinu og geta reynt að gera ólíklega atlögu að Spánarmeistaratitlinum með sigri í kvöldleiknum.

Það eru einnig fjórir leikir á dagskrá á sunnudeginum, þar sem Girona og Real Betis eigast við í áhugaverðum evrópuslag eftir fallbaráttueinvígi í Vigo.

Topplið Real Madrid fær sterkt lið Athletic Bilbao í heimsókn í lokaleik sunnudagsins og gætu mistök reynst dýr fyrir lærisveina Carlo Ancelotti.

Athletic er í fjórða sæti deildarinnar og þarf sigur í baráttu sinni um að festa sig í sessi í Meistaradeild Evrópu.

Lokaleikur helgarinnar fer fram á mánudagskvöldið þegar Villarreal spilar við Atlético Madrid. Heimamenn í Villarreal eru búnir að vinna fjóra leiki í röð á meðan Atlético er með tvö töp í röð og gæti verið að missa meistaradeildarsætið úr greipum sér.

Föstudagur:
20:00 Cadiz - Granada CF

Laugardagur:
13:00 Getafe - Sevilla
15:15 Almeria - Osasuna
17:30 Valencia - Mallorca
20:00 Barcelona - Las Palmas

Sunnudagur:
12:00 Celta Vigo - Rayo Vallecano
14:15 Girona - Real Betis
16:30 Alaves - Real Sociedad
19:00 Real Madrid - Athletic Bilbao

Mánudagur:
19:00 Villarreal - Atletico Madrid
Stöðutaflan Spánn La Liga - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Real Madrid 33 26 6 1 71 22 +49 84
2 Girona 33 22 5 6 69 40 +29 71
3 Barcelona 32 21 7 4 64 37 +27 70
4 Atletico Madrid 33 20 4 9 62 39 +23 64
5 Athletic 33 16 10 7 53 33 +20 58
6 Real Sociedad 33 13 12 8 46 35 +11 51
7 Betis 33 12 13 8 40 38 +2 49
8 Valencia 32 13 8 11 35 34 +1 47
9 Villarreal 33 12 9 12 54 55 -1 45
10 Getafe 33 10 13 10 41 45 -4 43
11 Osasuna 33 11 6 16 37 49 -12 39
12 Sevilla 33 9 11 13 41 45 -4 38
13 Alaves 33 10 8 15 31 38 -7 38
14 Las Palmas 33 10 7 16 30 41 -11 37
15 Vallecano 33 7 13 13 27 42 -15 34
16 Mallorca 33 6 14 13 27 39 -12 32
17 Celta 33 7 10 16 37 50 -13 31
18 Cadiz 33 4 14 15 23 46 -23 26
19 Granada CF 33 4 9 20 36 61 -25 21
20 Almeria 33 1 11 21 32 67 -35 14
Athugasemdir
banner
banner
banner