"Fyrstu viðbrögð eru gríðarlegt svekkelsi. Þú hittir á mig á vondum tíma. Ég er sár og svekktur," sagði Guðni Eiríksson, þjálfari FH, eftir 4-0 tap gegn Þór/KA í dag.
Lestu um leikinn: FH 0 - 4 Þór/KA
"Þetta var ekki 4-0 leikur. Þetta var kaflaskiptur leikur. Mér fannst Þór/KA sterkari í fyrri hálfleik en við vorum sterkari í seinni hálfleik. Munurinn er sá að við kláruðum ekki fyrir framan markið en þær gerðu það."
"Mark hjá FH liðinu í seinni hálfleik hefði breytt leiknum. Þá hefði hjartað farið að slá hraðar hjá Þór/KA. Við vorum að herja á þær og náðum að komast í góðar stöður. En inn vildi boltinn ekki,"
Allt viðtalið við Guðna má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir