Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
   fös 25. ágúst 2023 08:20
Aðsendir pistlar
Pistill: Pistlar á Fótbolta.net eru viðhorf höfundar og þurfa ekki endilega að endurspegla viðhorf vefsins eða ritstjórnar hans.
Opið bréf til Vöndu og KSÍ
Aðsendir pistlar
Aðsendir pistlar
Stelpurnar í KF/Dalvík.
Stelpurnar í KF/Dalvík.
Mynd: Aðsend
Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ.
Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ.
Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir
Opið bréf til formanns KSÍ þar sem hún er upptekin við önnur mál þessa dagana en að svara 4. flokks þjálfara út á landi, hvorki í síma né tölvupósti, þá ætla ég að láta á þetta reyna hér.

Sæl og blessuð Vanda Sigurgeirsdóttir formaður KSÍ

Þannig er mál með vexti að ég er þjálfari 4.fl kvk hjá KF/Dalvík og við skráðum eitt lið í Íslandsmót í sumar. Liðið var skráð sem B-lið þar sem getubilið er mikið í liðinu og fjöldinn ekki mikill hjá okkur í 4. flokki kvenna. Einnig vildum að þær fengu verkefni við hæfi. Liðið kom svo öllum á óvart og er búið að vera frábært í sumar og vann sinn riðill á Íslandsmótinu. Við fáum svo þau skilaboð að vegna þess að við erum ekki með lið í A-liða keppni fær liðið ekki að taka þátt í úrslitakeppninni sem stelpurnar stefndu á í allt sumar.

Það stendur vissulega í reglugerð hjá KSÍ að þetta sé ekki leyfilegt, þess má geta að ég vissi ekki af þessari reglu fyrr en í fyrradag, mèr finnst hins vegar sú regla og reglugerð barn síns tíma þar sem þarna er verið að útiloka minni félög frá því að eiga séns á glæstum árangri. Með þessu má ætla að það sé yfirlýst stefna að stærri félögin eigi ein að eiga möguleika á því að verða Íslandsmeistarar. Er eðlilegt að einungis lið frá Breiðablik, Stjörnunni/Álftanes, FH/ÍH, KA eða öðrum fjölmennum félögum geti hampað Íslandsmeistaratitlum? Og að fjöldi iðkenda hafi þar úrslitaáhrif? Er KSÍ virkilega endanlega orðið að höfuðborgarsamtökum sem skeytir lítið um félögin úti á landi sem eru að berjast í því að halda úti liðum í öllum flokkum af báðum kynjum og finnst eðlilegast að félögin sem eru með flesta iðkendur standi framar öðrum?

Er það í anda KSÍ að fámennum liðum eins og KF/Dalvík og fleirum sé gert það ómögulegt að sigra og ná eftirminnilegum árangri og uppskera eftir erfiði vinnu sinnar?

Þessi stefna og reglugerð er sem rýtingur í brjóst okkar stelpna og gerir lítið úr þeirri metnaðarfullu uppbyggingu sem á sér nú stað í kvennaboltanum hér út með Eyjafirði. KSÍ þarf að gera betur svo fólk í minni byggðum á landsbyggðinni trúi því að allir eigi möguleika á því að sigra. Það er nógu erfitt að halda stelpum á þessum aldri inn í fótbolta í þessum litlu sveitarfélögum hvað þá þegar þær fá svona skell að öll vinnan og markmiðum sé sópað út af borðinu út af úreltri reglugerð hjá KSÍ. Ég velti fyrir mér til hvers við séum þá yfir höfuð að taka þátt í Íslandsmótinu ef við eigum svo ekki möguleika á árangri? Það gjaldfellir líka algjörlega mótið ef lið sem endar í 4.-8. sæti í riðli, fær sæti í úrslitakeppni bara af því að það er A-lið frá þeim í keppni. Að sama skapi get ég ekki ímyndað mér að það sé einhver vilji frá þeim félögum til að taka þátt í svoleiðis leik, að leika í úrslitakeppni án þess að hafa náð árangri. Það er ekki í anda keppnisíþrótta.

Í sömu reglugerð er minnst á að Íslandsmótið eigi að vera svæðisskipt og svo sé úrslitakeppni á milli svæða. Þessi reglugerð er mölbrotin og algerlega virt af vettugi. Við höfum farið í 7 útileiki í 5 ferðum og keyrt um 900 km í hvert skipti. Við höfum þrisvar farið til Reykjavíkur, einu sinni á Reykjanesið og í eitt skipti á Hvolsvöll. Ég veit ekki hvernig KSÍ sér landshlutana en þessir landshlutar eru svo sannarlega ekki á okkar svæði. Kostnaður við þessi ferðalög er líka gríðarlegur og veltur í heildina á milljónum sem stelpurnar hafa unnið hörðum höndum að safna fyrir. Það er mjög skrýtið að fara eftir einni reglu í reglugerðinni en hunsa svo aðra bara eftir hentisemi KSÍ. Við hefðum jafnvel skipulagt sumarið með allt öðrum hætti hefðum við vitað af þessari reglu og velt fyrir okkur hvort fjármunum væri ekki verið betur varið við keppni nærri heimahögunum og á móti erlendis eða eitthvað sambærilegt.

Ég hafði samband við mótastjóra KSÍ sem sagði mér að rökin fyrir þessari reglu væru augljós. Ég er greinilega ekki þannig þenkjandi því rökin eru alls ekki augljós í mínum huga því ekki skrái ég lið með það að markmiði að rústa mótinu. Það græðir enginn neitt á því, allra síst leikmenn sem ég þjálfa og kenni að bera virðingu fyrir sanngirni og heilindum innan vallar sem utan. Ég trúi því heldur ekki að mótastjóri geti ekki metið hvert tilfelli fyrir sig í stað þess að skýla sér á bak við regluverk. Þetta tilfelli, sem er 4. fl. lið KF/Dalvíkur er vonandi þannig vaxið að hægt sé að meta okkur í hag.

Leikmenn 4. fl. KF/Dalvíkur þrá að fá jákvætt svar við þessu bréfi, sem og annað knattspyrnufólk úr fámennum félögum sem heldur kannski enn að lið þeirra geti unnið titla séu liðin nógu góð.

Er möguleiki að stelpurnar fái að taka þátt í úrslitakeppni eins og þær eiga skilið og hafa unnið sér inn? Ef það er ekki mögulegt velti ég því upp hvort KSÍ ætli að greiða ferðakostnaðinn fyrir okkur þar sem KSÍ braut reglugerðina um svæðaskiptinguna vísvitandi?

Ef stelpurnar fá að taka þátt í úrslitakeppni og falla úr leik í fyrstu umferð er það hluti af leiknum, en að vera meinuð þátttaka út af reglugerð er eitthvað sem er ómögulegt að útskýra fyrir þeim. Ég veit allavegana að þær eru niðurbrotnar og vonsviknar nú þegar. Hver sem niðurstaðan verður mun ég þjálfari liðsins og aðrir aðstandendur gera allt sem í okkar valdi stendur að hvetja þær til dáða og gæta þess að fótboltaáhugi þeirra og sjálfstraust bíði ekki hnekki.

Með von um jákvæð svör,
Friðjón Árni Sigurvinsson
Þjálfari 4.fl kvk
Barna og unglingaráð knattspyrnudeildar UMFS
Athugasemdir
banner
banner