Bayern reynir aftur við Walker - Neves til Man Utd?
banner
   fös 29. mars 2024 15:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Meiðsli Robertson ekki alvarleg
Mynd: EPA

Andy Robertson bakvörður Liverpool meiddist í landsleik með Skotlandi á dögunum en meiðslin virðast ekki vera alvarleg.


Þetta er í annað sinn á þessari leiktíð sem Robertson meiðist í leik með skoska landsliðinu en hann fór úr axlarlið fyrr á þessari leiktíð og var þá frá í þrjá mánuði.

Liverpool mætir Brighton á páskadag en Jurgen Klopp ræddi við fréttamenn í dag.

„Við munum taka stöðuna daglega. Hann mun ekki æfa í dag en þetta er ekki svo slæmt," sagði Klopp.


Athugasemdir
banner
banner