Man Utd og Arsenal vilja Guehi - Osimhen gæti farið til Chelsea eða PSG - Geertruida gæti fylgt Slot til Liverpool
   sun 14. apríl 2024 23:13
Brynjar Ingi Erluson
Nökkvi hjálpaði St. Louis að sigla sigrinum heim - Óttar í sigurliði
Nökkvi Þeyr spilaði hálftíma með St. Louis í kvöld
Nökkvi Þeyr spilaði hálftíma með St. Louis í kvöld
Mynd: Beerschot
Nökkvi Þeyr Þórisson og hans menn í St. Louis unnu 1-0 sigur á Austin FC í MLS-deildinni í kvöld.

Dalvíkingurinn hefur ekki fengið margar mínútur í undanförnum leikjum en í kvöld fékk hann hálftíma til að spreyta sig.

Hann kom inn á í stöðunni 1-0 og hjálpaði liðinu sínu að landa sigrinum,

St. Louis er í 8. sæti Vestur-deildarinnar með 11 stig eftir átta leiki en Nökkvi hefur komið við sögu í fimm þeirra.

Óttar Magnús Karlsson kom þá inn af bekknum á 73. mínútu er Vis Pesaro lagði Perugia að velli, 1-0, í C-deildinni á Ítalíu.

Vis Pesaro var manni færri en Óttar og hans menn náðu að halda út. Liðið er í 18. sæti B-riðils með 36 stig.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner